Tækið ræst í fyrsta sinn
Þegar þú ræsir tækið í fyrsta skipti útskýrir uppsetningarhjálpin grunnstillingar tækisins og
aðstoðar þig við innskráningu í reikninga og við að sérsníða tækið. Ef þú ert t.d. með
Sony Entertainment Network eða Google™ reikning getur þú skráð þig inn á hann og
sett hann upp undir eins.
Þú getur líka fengið aðgang að uppsetningarleiðsögn seinna í stillingavalmyndinni. Þú þarft að
skrá þig inn sem eigandi, þ.e. aðalnotandi, til að fá aðgang að uppsetningarleiðsögn í tæki
með fleiri en einn notanda.
Kveikt á tækinu
1
Haltu rofanum inni þar til tækið titrar.
2
Sláðu inn PIN-númerið fyrir SIM-kortið, ef beðið er um það, og pikkaðu svo á
.
3
Bíddu augnablik þar til tækið ræsist.
Slökkt á tækinu
1
Haltu rofanum inni þar til valkostavalmyndin opnast.
2
Í valkostavalmyndinni pikkarðu á
Slökkva.
Nokkur tími getur liðið þar til slokknar alveg á tækinu.