Sony Xperia Z3 Plus Dual - Skjástillingar

background image

Skjástillingar

Birtustig skjásins stillt

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Birtustig.

3

Dragðu sleðann til að stilla birtustigið.

Með því að minnka birtustigið sparast rafhlaðan.

Titringur við snertingu virkjaður

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð > Önnur hljóð.

3

Dragðu sleðana við hliðina á

Titrar við snertingu í stöðuna Kveikt. Nú titrar síminn

þegar þú pikkar á mjúka takka.

Stilling á biðtíma áður en slokknar á skjánum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Orkusparnaður.

3

Veldu valkost.

Til að slökkva á skjánum á fljótlegan hátt ýtirðu í stutta stund á aflrofann .

Stilling leturstærðar

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Leturstærð.

3

Veldu valkostinn sem óskað er eftir.

61

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skjástærð stillt

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Skjástærð.

3

Dragðu sleðann til að stilla valkostinn sem óskað er eftir.

Stilling hvítjöfnunar (ljósgjafa) á skjánum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Hvítjöfnun.

3

Dragðu sleðana í viðeigandi stöðu til að stilla hvítjöfnunina.

Pikkaðu á >

Sjálfgefin gildi til að færa hvítjöfnunarstillinguna aftur á sjálfgefin gildi.

Snjallstýring baklýsingar

Snjallstýring baklýsingar heldur skjánum virkum á meðan þú heldur á tækinu. Þegar þú

leggur tækið frá þér slokknar á skjánum í samræmi við svefnstillingar þínar.

Kveikt á snjallstýringu baklýsingar

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Skjár > Snjallstýring baklýsingar.

3

Dragðu sleðann til hægri.

Hanskastilling

Í hanskastillingu geturðu verið í hönskum og farið um skjáinn á tækinu þínu. Þegar

hanskastilling er notuð birtist hringlaga bendill á skjánum þar sem snerting er skráð.

Kveikt á hanskastillingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á > Stillingar > Skjár > Hanskastilling.

2

Pikkaðu á sleðann til að kveikja á þessum valkosti.

Næmið veltur á stærð snertiflatarins á milli skjásins og fingursins í hanskanum sem þú notar til

að fara um skjáinn.

Skjáfesting

Þú notar skjáfestingu til að stilla tækið þannig að aðeins skjár tiltekins forrits birtist á

skjánum. Ef þú ert til dæmis að spila leik og kemur óvart við heimatakkann kemur

skjáfestingin í veg fyrir að glugginn með leikjaforritinu minnki. Einnig er hægt að nota

þennan eiginleika ef þú lánar öðrum tækið þitt svo viðkomandi eigi erfiðara með að opna

meira en einn skjá eða forrit. Til dæmis er hægt að festa símaforritið á skjáinn þegar þú

lánar einhverjum tækið til að hringja símtal svo viðkomandi geti ekki með góðu móti notað

t.d. skilaboða- eða tölvupóstsforritið.

Skjáfesting er ekki öryggiseiginleiki og kemur ekki að fullu í veg fyrir að aðrir notendur opni

skjáinn og fái aðgang að tækinu. Til að vernda gögnin þín ættir þú að stilla tækið þannig að

það biðji um PIN-númer, lykilorð eða munstur áður en hægt er að opna skjáinn.

Kveikt eða slökkt á skjáfestingu

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Lásskjár og öryggi > Skjáfesting.

3

Pikkaðu á sleðann til að kveikja eða slökkva á eiginleikanum.

4

Ef þú ert með kveikt á skjáfestingu geturðu pikkað á sleðann

Biðja um

opnunarmynstur við losun til að kveikja eða slökkva á þessum

viðbótaröryggiseiginleika eftir þörfum.

Ekki er nauðsynlegt að hafa mynstur, PIN-númer eða lykilorð til að skjáfesting virki.

62

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skjár festur

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á skjáfestingu í tækinu.

2

Opnaðu forrit og skjáinn sem þú vilt festa.

3

Pikkaðu á .

4

Til að birta skjáfestingartáknið , strjúktu upp.

5

Pikkaðu á .

6

Pikkaðu á

Náði því í glugganum sem birtist.

Skjár losaður

1

Á festa skjánum styðurðu við og samtímis.

2

Slepptu báðum hnöppum.

Ef þú merktir við öryggisvalkost þegar þú festir skjáinn þarftu að slá inn mynstrið, PIN-númerið

eða lykilorðið til að taka tækið úr lás áður en hægt að losa skjáinn.